• Settu blómin þín strax í vatn.
• Skerðu fyrst 1-2 cm neðan af stilkunum með beittum hníf.
• Fjarlægðu öll blöð og þyrna sem lenda ofan í vatninu.
• Notaðu hreina blómavasa og hreint vatn með blómanæringu:
-Mjúkir stilkar fara í kalt vatn.
-Harðir stilkar fara í ylvolgt vatn.
• Skiptu um vatn daglega ef þú notar ekki blómanæringu, annars fyllir þú á með blómanæringarvatni eftir þörfum.
• Hafðu blómin ekki nálægt hitagjöfum eða í sólskini.
• Fjarlægðu visnuð blóm strax.
|